Persónuverndarstefna Pling
Síðast uppfært: 16. nóvember 2026
Í stuttu máli: Pling virkar án innskráningar, og þá er allt sem þú setur inn eingöngu í símanum þínum. Ef þú skráir þig inn til að tengja síma fjölskyldunnar geymum við lágmarksupplýsingar á netþjóni innan EES. Við seljum engin gögn, birtum engar auglýsingar og fylgjumst ekki með því hvernig þú notar appið. Þú getur eytt öllu hvenær sem er í appinu.
Ábyrgðaraðili
Brynjólfur Löve ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga í Pling.
Netfang: hallo@plingapp.is
1. Án innskráningar: allt í símanum
Þú getur sett inn fornafn barns, lit og skóla, stundaskrá og hvað þarf að taka með, hver passar á frídögum, eigin frídaga, athugasemdir og stillingar fyrir áminningar. Þetta er eingöngu geymt í símanum þínum. Áminningar eru tímasettar af símanum sjálfum. Við höfum engan aðgang að þessu.
2. Ef þú skráir þig inn (valfrjálst)
Innskráning er bara nauðsynleg til að tengja síma, t.d. við maka, hitt heimilið eða ömmu og afa.
Hvað er geymt á netþjóni:
- Netfangið þitt. Til að senda þér innskráningarkóða.
- Nafnið sem fjölskyldan kallar þig, t.d. „Mamma“.
- Fyrir hvert barn sem þú tengir: fornafn, litur, skóli, stundaskrá, og hvort barnið má vera eitt heima eða fá áminningar um pökkun. Engar kennitölur og engin eftirnöfn.
- „Hver tekur daginn?“ fyrir þitt heimili.
- Boðskóðar sem þú býrð til og hverjir hafa notað þá.
Hver sér hvað: Fólk á sama heimili sér gögn heimilisins. Amma og afi (hjálparhönd) sjá en geta engu breytt. Ef foreldrar búa ekki saman á hvort sitt heimili. Þá eru bara börnin, skólinn og stundaskráin sameiginleg, og „hver tekur daginn“, athugasemdir og annað á hvoru heimili sést ekki hinu. Umgengni er geymd í hverjum síma fyrir sig, ekki á netþjóninum.
Lagagrundvöllur: Vinnslan er nauðsynleg til að veita þjónustuna sem þú biður um þegar þú tengir síma (samningur, 6. gr. 1. mgr. b-liður GDPR).
3. Það sem appið sækir eða sendir af netinu
| Hvað | Til hvers | Hvert | Hvað er sent |
|---|---|---|---|
| Veðurspá | Minna á kuldagalla og regnföt | MET Norway (Norska veðurstofan) | Föst hnit hverfis skólans. Ekki staðsetning símans. Hægt að slökkva á í stillingum. |
| Skóladagatöl | Nýjustu frídagar án uppfærslu | plingapp.is (Cloudflare) | Ekkert um þig. Allir símar sækja sömu skrá. |
| Uppfærslur á appinu | Lagfæringar | Expo (EAS Update) | Útgáfa appsins og stýrikerfis. |
| Innskráning og tenging (valfrjálst) | Sjá 2. kafla | Supabase, Írlandi | Gögnin í 2. kafla |
| Innskráningarkóði (valfrjálst) | Senda kóðann | Resend, Írlandi | Netfangið þitt og kóðinn |
Eins og við allar tengingar á netinu sjá þessir aðilar IP-tölu símans þegar hann tengist.
4. Vinnsluaðilar
- Supabase (gagnagrunnur og innskráning), gögn geymd á Írlandi (eu-west-1)
- Resend (sendir innskráningarkóða), Írlandi (eu-west-1)
- Cloudflare (lén og vefur plingapp.is)
- Expo / EAS (uppfærslur á appinu)
- Apple og Google (dreifing appsins og tilkynningar)
Við gerum vinnslusamninga við vinnsluaðila eftir því sem við á. Ef gögn eru flutt út fyrir EES er það á grundvelli staðlaðra samningsákvæða ESB.
5. Hversu lengi
- Gögn í símanum: þar til þú eyðir þeim eða appinu.
- Gögn á netþjóni: þar til þú eyðir aðganginum. Afrit gagnagrunnsins eru geymd í allt að 7 daga.
- Boðskóðar gilda í 7 daga og eru eytt með heimilinu.
6. Eyða gögnum
- Aðgangur og gögn á netþjóni: Stillingar → Aðgangur → Eyða aðgangi. Þá er aðganginum eytt strax, ásamt heimilum þar sem ekkert annað foreldri er og börnum sem búa hvergi annars staðar. Heimili sem þú deilir með öðru foreldri haldast hjá því.
- Gögn í símanum: Stillingar → Um appið → Eyða öllum gögnum, eða eyða appinu.
- Þú getur líka sent beiðni á hallo@plingapp.is.
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að gögnum um þig, fá þau leiðrétt eða eytt, takmarka vinnslu og fá þau afhent á tölvutæku formi. Sendu beiðni á hallo@plingapp.is. Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
8. Börn
Pling er ætlað foreldrum og forráðamönnum, ekki börnum. Fornöfn barna eru eingöngu notuð til að birta áminningar og deila þeim með þeim sem foreldrið tengir.
9. Breytingar
Ef stefnan breytist uppfærum við dagsetninguna efst. Ef breytingin skiptir máli fyrir þig segjum við frá henni í appinu.